|
Aðrir litlir vinir mínir...
Frændgarðurinn...stórir og smáir.
|
20.01.2008 00:22:00 / Barnakotskellan
Jæja gott fólk,nú er ég endanlega búin að gefast upp á þessari síðu í bili og búin að stofna nýja eða þessa hér http://loathor.blog.is/blog/loathor/ er orðin hundleið á því að það er ekki hægt með góðu móti að koma inn myndum inn á þessa.Þið sem nennið að lesa skrifskrumið mitt værum voðalega sæt í ykkur ef þið commentuðu á þá nýju og segðuð mér hvernig ykkur líst á.Knús á línuna
»
04.12.2007 09:22:34 / Barnakotskellan
Halló..!!!!...Er ekki kominn jólafiðringur í mannskapinn..??..Hann er komin í mig enda löngum verið talin vera dálítið klikk þegar kemur að því að skreyta fyrir jólin..hehehe..allavega fynnst manninum mínum nóg um öfgana stundum...alveg blöskrar það bara..haha..en þetta er bara svo gaman og falllegt líka svo er ég að reyna að smita stelpurnar af þessu líka..hehe..það er nú samt fyrst núna sem mér fynnst að þær sýni þessu einhvern áhuga að alvöru,það er spáð voða mikið í jólasveinka og hvenar hann kemur til að láta í skóinn og svona þannig að það er skemtilegur tími framundan hérna á heimilinu.Annars er kellan búin að baka smá og svo þarf að fara að huga að því að pakka einhverjum jólagjöfum inn,það er svo svakalega leiðinlegt og erfitt að vera í rassgati með þetta því ætla ég að reyna að vera svolítið tímanlega í ár.Læt þetta duga að sinni og endilega að commenta eða sétja staf í gestó,það er svo gaman að sjá hverjir kíkja.Nú er klukkan rétt að verða hálf tíu að morgni það er 9 manns búinir að kíkja..inn..á síðuna..Kveðja úr Barnakoti 
»
02.12.2007 00:25:07 / Barnakotskellan
»
29.11.2007 09:32:49 / Barnakotskellan
Jæja góðir hálsar..það fór aldrei svo að kæmi ekki snjór,nú er allt orðið alhvítt yfir að líta en það á víst ekki að standa lengi við því það spáir rigningu næstu daga og þá er það flotið burt aftur...einu sinni enn..Annars veltir maður vöngum yfir því hvað maður á að taka sér fyrir hendur um helgina..hehe...eru það seríur í alla gluggana innandyra eða 4-5 sortir af smákökum eða bara bæði...hehe...hvað fynnst ykkur??ég veit ekki alveg,svo er Kirkjuskóli hjá stelpunum og messusöngur hjá frúnni á sunnudaginn þannig að það er nóg að gera þessa helgina,maður sér svona til hvað maður kemst yfir að afreka af þessu.Bið að heilsa ykkur í bili.Knús og kveðja úr Barnakoti 
Krúttlegur
»
25.11.2007 17:54:35 / Barnakotskellan
BURRRR
Halló þið öll..Ég er að
velta fyrir mér ????....hvað er þetta með þessa veðráttu hérna hjá
okkur.Það er ýmist rigning og þá meina ég sko alvöru rigning með
brjáluðu roki eða þá bruna gaddur þannig að maður liggur við að
frjósa fastur bara um leið og komið er út í dyr,alveg magnað
þetta.Maður er að verða dálítið leiður á þessu..arg..
Annars er annað bara gott að
frétta hjá okkur.Við fórum öll í piparkökubakstur í gær,það var
voða gaman og ekki fannst stelpunum þetta síður skemmtilegt og
afraksturinn var bara góður slatti af piparkökum..namm,namm,svo var
mín svo dugleg að byrja að baka aðeins fyrir jólin,dreif
lagterturnar af,ekkert smá dugleg.Annað að frétta er að
Frumburðurinn minn er að útskrifast (ÞAÐ VAR MIKIÐ..HEHE..) þann 20
desember nk,það er mikið tilhlökkunarefni hjá mér.Hvað gefur maður
svona verðandi hárgreiðslukonum í útskriftargjöf ??Varla greiðu og
skæri..hehe..eða hárkollu..??..hehe..nei bara grín ..Bið að
heilsa ykkur í bili.Knús á alla sem ég þekki..Kveðja úr Barnakoti..
HEHE
»
10.11.2007 10:03:32 / Barnakotskellan
Heil og sæl öll saman.Þetta er bara búin að vera annasöm vika hjá okkur,mikið að gera í vinnuni hjá okkur gömlu báðum og veikindi á börnunum líka...dáldið strembið en einhvern veginn þá bjargaðist þetta hjá okkur með því að púsla og skiptast á .Litla stubban mín send heim af Leikskólanum í gær með ælupest og og tvíbbinn hún S komin með alveg bullandi blöðrubólgu með hljóðum á fimmtudagskvöldið,ljóta ástandið..en þetta virðist allt vera að lagast hægt og sígandi en stubban er voðalega slöpp í dag enda óvanalegt að þessi litli morgun spræki krakki sé sofnuð núna klukkan að verða 10 fyrir hádegi,kom bara til mömmu sinnar og sagði.."mamma,ég er þreytt,má ég lúlla í þínu rúmi"...og bing...sofnuð eins og skot með dudduna sína litla dúllan mín.. Jæja en nóg um það verð að fara að undirbúa mannskapinn,þarf nefnilega að skreppa á Selfoss og Hveragerði í Bónus leiðangur og trúlega eitthvað meira.Bið að heilsa ykkur öllum í bili og sendi knús og kossa á línuna.Kveðja úr Barnakoti 
HEHE
»
08.11.2007 00:20:00 / Barnakotskellan
Hæbs..Hvað er eiginlega sem veldur veldur því að unglingur tekur sig til og fretar með byssu á skólafélaga sína??visir.is/article/20071107/FRETTIR02/71107106 rakst á þessa frétt..uss..alveg hræðileg  lesning og svo lést hann sjálfur af skotsárum.SVAKALEGT BARA !!!!!!! Meira seinna........ Kveðja úr Barnakoti
»
25.10.2007 19:31:12 / Barnakotskellan
Halló....!!!!!!!!!!!......Hvað er þetta eiginlega...eru allir hættir kvitta eða commeta..ha.. ..það er svo gaman að vita hverjir poppa inn á síðuna mína.Endilega að gera vart við ykkur...ekki vera feimin..hehe ... bið að heilsa í bili....knús á línuna...úr Barnakoti 
»
12.10.2007 09:20:13 / Barnakotskellan
»
10.10.2007 09:10:50 / Barnakotskellan
»
08.10.2007 16:11:42 / Barnakotskellan
Halló enn og aftur.Nú er
ég bara heima í dag,stubban mín er lasin einu sinni enn
og er með hita og ógeðslegan hósta,þetta er nú meira
heilsufarið á heimilinu.Það má eiginlega segja að þetta sé
önnur vikan í pestum en við gömlu höfum skipst á að vera
heima með því að skipta deginum á milli okkar,þetta er nú
meira messið en þetta hlýtur að fara að ganga yfir.Á morgun á
svo að fara að líta á Háls,nef og eyrnalækninn en við þurfum
að skrönglast út í Hveragerði til þess á Heilsugæsluna þar en
það er verið að rífa allt og tætast í lækastofunum á
Selfossi.Það verður gaman að vita hvað kemur út úr tékkinu
hjá þeim.Annars er nú eitt rörið dottið úr Önnu Lísu svo það
er spurning hvað verður gert með hana.Jæja,ætli að það sé
ekki rétt að fara að gera eitthvað að viti fyrst maður er
heima á annað borð.Kveðja úr Barnakoti
 Bæ...
»
07.10.2007 18:19:20 / Barnakotskellan
Alveg getur maður orðið gáttaður á hlutunum stundum,en þannig vildi nú til að við skruppum á Selfoss í dag sem væri nú kannski ekki frásögum færandi nema að ég hafði fyrir stuttu síðan skroppið í Nóatún og keypt pollagalla á tvíbba stelpurnar mína nema að þegar ég kom heim að þá sá ég að þeir máttu vera aðeins stærri..ok..ég hugsaði sem svo að skipta í næstu ferð sem varð svo í dag nema hvað að ég fer inn og hitti fyrir afgreiðslu stúlku á einum kassanum og segji henni erindi mitt og sýni henni jafnframt kassakvittun fyrir því að ég hafi keypt pollagallana hjá þeim...jújú..hún tekur við göllunum og segist svo bara bítta við mig þeta ég kem til baka..ok..!!!!!....en ég var líka að spá í skó á stelpurnar líka.Ég fann nú gallana fljótlega sjálf en svo fórum við að skoða skóna og fundum þá skó sem okkur leyst vel á og fundum nú stúlku til að athuga með stærðir og því um líkt...jæja hún fann skóna og kom með þá fram og við berum þá við og líst bara nokkuð vel og ég spyr stúlkuna hvort hún eigi ekki tvenna í stærð 26,hún fer en kemur að vörmu spori aftur og segjir ..."nei,það er bara til 1 par í nr 26" og ég spyr þá hvort ekki til tvennir í nr 27,hún rekur nefið sem snöggvast inn í lagerdyrnar og segjir strax ..."Neibb bara 1 par til í nr 27"..arg hvað ég var spæld en þetta er sko ekki í fyrsta skiptið sem að maður lendir í þessu brasi að fá ekki tvennt eins á stelpurnar nema að svo fer amma þeirra að spyrja stúlkuna um kuldagalla sem höfðu verið auglýstir hjá þeim og hvar þeir séu en þá segir stelpu garmurinn "ég veit bara ekkert hvar þeir eru" og labbaði svo bara inn á lager,hvað fynnst ykkur um þessa þjónustulund eg bara spyr.Við urðum bara að leita sjálf og fundum ekki neitt þannig að þetta varð ekki góður bisnis fyrir verslunina..jé minn góður...svo komum við kassan og ég hitti fyrir fyrnefnda stúlku og skipti við hana á pollagöllum og hún tekur þjófavarnirnar úr þessum sem ég sótti í búð og við bara förum en þegar ég geng í gegnum hliðið út úr Nóatúni þá byrjar að væla og ég fatta eins og skot að það er helv.þjófavörnin í pokanum hjá mér,geng til baka og það byrjar að skrækja aftur og ég riksa til baka með 40 augu gónandi á mig og helmingurinn ábyggilega hugsað.."hverju var hún að reyna að stela þessi"og til stúlkunar fyrrnefnu og segji henni að hún hafi nú trúlega gleymt þjófavörn í göllunum..hún horfði bara á mig stórum augum og sagði svo.."Er kannski þjófaklemma í buxunum líka ? "...bíddu nú við,var hún að spyrja mig?? ..ég varð nú dáldið ringluð... ..var hún ekki að vinna þarna..???...og ég sagði við hana að það væri ábyggilega í þeim líka og vitið menn,þjófaklemmur í báðum buxunum þannig að ég var bara orðin tvöfaldur þjófur í augum þessa 40 augna sem fylgdust grant með öllu saman..úff maður...það kemur sér að maður er með hreina samvisku..jæja,stelpu garmurinn vippar þessu úr pollabuxunum og réttir mér þær og ég treð þeim ofan í pokan aftur og geri nú ráð fyrir að að nú komi afsökunarbeiðnin en NEI...EKKERT... ...ekki afsakaðu þetta eða fyrirgefðu eða neitt,hún snéri sér bara strax við og fór að gera annað... ..hvað er bara að orðið ? Eru bara allir venjulegir mannasiðir og kurteisi bara dottin úr tísku... eg bara spyr? Ég er búin að vera viðloðandi verslun og þjónustu vel á þriðja áratug og ég bara skil ekki hvernig þetta getur gengið svona og þetta á ekki bara við um þessa tilteknu verslun heldur margar fleiri sem maður kemur inn í þar sem þessi aldurshópur er við störf 15 ára til 20 ára.Ég bara spyr enn og aftur?? Er ekki farið yfir það með þessum krakkagreyjum þegar þau eru ráðin að það gildi ákveðnar reglur um kurteysi og háttvísi við viðskyptavinina?? það var allavega þegar ég var að byrja í þessu en það er kannski við líði lengur og ekki í tísku lengur en allavega betur má ef duga skal segji ég. Jæja,gott fólk,ætli ég sé ekki búin að rausa nóg að sinni og kveð í bili.Bestu kveðjur úr Barnakoti
»
06.10.2007 11:49:16 / Barnakotskellan
Hæ..var aðeins að kíkja inn og tók þá eftir því að það eru fleiri en mig grunaði sem skoða síðuna mína..endilega að skrifa í gestó eða commenta,það er svo gaman að vita hverjir skoða hjá manni..Knús á línuna..Barnakotskellan 
Ái..........
»
Síður: 1 2 3
|
Dagsetning
9. febrúar 2012
|